• Rekstrartekjur samstæðunnar á fyrri árshelmingi ársins 2010 voru 60,4 m€, en voru 60,8 m€ árið áður • EBITDA var 19,0 m€ (31,5%), en var 12,9 m€ (21,3%) árið áður • Tap tímabilsins var 1,4 m€, en árið áður var hagnaður 6,0 m€ Lykiltölur: Sjá viðhengi. Rekstur fyrstu sex mánaða ársins 2010 Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrri helmingi ársins 2010 námu 60,4 m€, samanborið við 60,8 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 19,0 m€ eða 31,5% af rekstrartekjum, en var 12,9 m€ eða 21,3% árið áður. Hærra EBITDA hlutfall skýrist m.a. af afkomu loðnuvertíðar, sem ekki varð árið áður. Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 12,4 m€, en jákvæð um 0,3 m€ á sama tíma árið áður. Meginskýringin liggur í gengistapi upp á 10,0 m€ vegna veikingar evru gagnvart öðrum gjaldmiðlum, sem félagið skuldar í. Á fyrri helmingi ársins 2009 varð gengishagnaður 3,3 m€. Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 1,2 m€. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 2,5 m€, en tap tímabilsins var 1,4 m€. Tekjuskattur að upphæð 3,9 m€ er reiknaður samkvæmt framtali í íslenskum krónum, en þar varð gengishagnaður og verður reiknaður tekjuskattur þess vegna svo hár. Efnahagur Heildareignir félagsins námu 301,0 m€ í lok júní 2010. Þar af voru fastafjármunir 252,5 m€ og veltufjármunir 48,5 m€. Eigið fé nam 131,5 m€ og var eiginfjárhlutfall 44%, en var 46% í lok árs 2009. Heildarskuldir félagsins voru í júnílok 169,5 m€. Sjóðstreymi Handbært fé frá rekstri nam 6,6 m€ á fyrri helmingi ársins 2010, en 13,0 m€ á sama tíma fyrra árs. Fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 6,9 m€. Fjármögnunarhreyfingar námu 6,6 m€ og voru nettó afborganir langtímalána þar af 5,4 m€. Handbært fé lækkaði því um 6,8 m€ og var í lok júní 5,2 m€. Skipastóll og afli Skipastóll HB Granda hf. var óbreyttur. Á fyrri helmingi ársins 2010 var afli skipa félagsins 26 þúsund tonn af botnfiski og 51 þúsund tonn af uppsjávarfiski.