Jóhann Sigurjónsson, fjármálastjóri HB Granda, lætur nú af störfum að eigin ósk. Jóhann hefur verið fjármálastjóri félagsins frá október 2002 og hverfur nú til annarra verkefna. Við starfi fjármálastjóra tekur Jónas Guðbjörnsson. Jónas er löggiltur endurskoðandi og hefur undanfarið starfað sem fjármálastjóri Kjalars hf. Áður var Jónas fjármálastjóri Olíufélagsins, en þar áður vann hann sem endurskoðandi hjá Deloitte, m.a. fyrir mörg öflug sjávarútvegsfyrirtæki. HB Grandi þakkar Jóhanni fyrir vel unnin störf og óskar honum alls hins besta og býður um leið Jónas velkominn til starfa.
Recommended Reading
-
Brim hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki BRIM 29 09 Brim hf. („BRIM“) hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki BRIM 29 09. Heildareftirspurn í skuldabréfaflokkinn nam kr....
Read More -
Brim hf. (“BRIM”) efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 15. september næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum flokki BRIM 29 09. Skuldabréfaflokkurinn BRIM 29 09 er með einni...
Read More