Tilkynning frá Össuri hf. Nr. 22/2010 1. nóvember 2010 Að beiðni Össurar hefur Seðlabanki Íslands veitt öllum hluthöfum, sem hafa eignast hlutabréf í Össuri fyrir 1. nóvember 2010, heimild til að umbreyta bréfunum og flytja þau af íslenska markaðnum yfir á danska markaðinn. Áður var heimildin bundin við bréf sem voru keypt fyrir 1. apríl 2009. Enn þarf sérstaka undanþágu frá Seðlabanka Íslands vegna umbreytingu og flutnings á hlutum frá Danmörku til Íslands. Nánari upplýsingar um hvernig er hægt að umbreyta og eiga viðskipti með hlutabréf Össurar er að finna á heimasíðu félagsins: www.ossur.is/investors [HUG#1457782]
Umbreyting og flutningur á hlutabréfum frá Íslandi til Danmerkur - Nýjar upplýsingar
| Source: Össur hf.