Yfirlýsing peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands - Vextir Seðlabankans lækkaðir


Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um
0,75 prósentur. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 4,0% og
hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum í 5,25%. Vextir á lánum gegn veði til
sjö daga lækka í 5,5% og daglánavextir í 7,0%. 

Verðbólga minnkaði áfram í september og október, eftir töluverða hjöðnun frá
því í mars. Tólf mánaða verðbólga var 3,3% í október, eða 2,6% ef áhrif hærri
neysluskatta eru frátalin, sem er við verðbólgumarkmiðið. Slaki í
þjóðarbúskapnum, lækkandi verðbólgu¬væntingar og gengishækkun krónunnar það sem
af er ári styðja við áframhaldandi hjöðnun verðbólgu. 

Samkvæmt spánni sem birt er í Peningamálum í dag, verður þróttur innlends
efnahagslífs í ár og á næsta ári heldur minni en Seðlabankinn spáði í ágúst.
Enn er þó gert ráð fyrir að efnahagsbati hefjist á seinni hluta ársins.
Verðbólga hefur hjaðnað hraðar en spáð var í ágúst og gert er ráð fyrir að
verðbólga verði við markmið bankans í lok árs, að hún verði komin niður fyrir
2% á næsta ári, en aukist síðan í átt að markmiði. 

Frá fundi peningastefnunefndar í september hefur viðskiptavegið meðalgengi
krónu hækkað um tæplega 1%, en krónan hefur veikst lítið eitt gagnvart evru.
Eins og vænst var hafa reglubundin kaup Seðlabankans á gjaldeyri, sem hófust
31. ágúst síðastliðinn, ekki haft veruleg áhrif á gengi krónunnar.
Gjaldeyrishöftin, þróun viðskiptakjara og annarra þátta sem áhrif hafa á
viðskiptajöfnuð, ásamt aðhaldsstigi peningastefnunnar í samanburði við helstu
viðskiptalönd halda áfram að styðja við gengi krónunnar. 

Peningastefnunefndin telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til
áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds haldist gengi krónunnar stöðugt eða
styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er. Áætlanir um afnám hafta á
fjármagnshreyfingar skapa hins vegar óvissu um hversu mikið svigrúmið er til
skemmri tíma. Nefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar
eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla
að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt
markmiði til lengri tíma litið. 
GlobeNewswire