Tilkynning frá Össuri hf. No. 23/2010 Reykjavik, 16 nóvember 2010 Arion banki hættir viðskiptavakt með hlutabréf Össurar Í kjölfar beiðni Össurar um afskráningu úr kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi hafa Össur hf. og Arion banki hf. samið um að leysa Arion banka undan samningi um viðskiptavakt með hlutabréf Össurar. Samkomulagið tekur þegar gildi. Frekari upplýsingar: Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími: +354 664-1020 Sigurborg Arnarsdottir, fjárfestatengill, sími: +354 664-1044 Tilkynningar frá Össuri með tölvupósti: Ef þú hefur áhuga á að fá sendar tilkynningar frá Össuri, vinsamlega skráðu þig á heimasíðu Össurar: http://www.ossur.com/investormailings. [HUG#1462910]