ÖSSUR HF. - NIÐURSTÖÐUR FYRIR 4. ÁRSFJÓRÐUNG OG ÁRIÐ 2010 Símafundur kl. 11:00 Þriðjudagur 8. febrúar Össur hf. birtir uppgjör fyrir 4. ársfjórðung og árið 2010 eftir lokun markaða mánudaginn 7. febrúar. Þriðjudaginn 8. febrúar verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta, hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður 4. ársfjórðungs og ársins 2010. Fundurinn hefst kl 11:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgjast með honum á netinu, á slóðinni www.ossur.com/investors Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru: Evrópa: +44 (0)20 3043 2436 eða +46 (0)8 505 598 53 Bandaríkin: +1 866 458 40 87 Ísland: 800 8660 Kynningarefni verður aðgengilegt á heimasíðu Össurar: www.ossur.com/investors, fréttavef Kauphallarinnar NASDAQ OMX: http://nasdaqomxnordic.com/Frettir og á heimasíðu Hugin www.huginonline.com [HUG#1484320]