Stjórn Landsvaka hf., rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingasjóða Landsbankans, hefur tekið ákvörðun um samruna verðbréfasjóðsins Markaðsbréfa Landsbankans – stuttra við verðbréfasjóðinn Markaðsbréf Landsbankans - löng. Samruninn er framkvæmdur með hagsmuni hlutdeildarskírteinishafa að leiðarljósi. Aðstæður fyrir blandaðan skuldabréfasjóð (sjóður sem fjárfestir í ríkisskuldabréfum, skuldabréfum sveitarfélaga, fjármálafyrirtækja og annarra fyrirtækja) með stuttan líftíma eins og Markaðsbréf Landsbankans-stutt eru ekki góðar vegna lítils framboðs og fer samruninn fram í því ljósi.
Hlutdeildarskírteinishafar sjóðsins munu þann 26. janúar næstkomandi fá bréf þar sem samruninn verður nánar kynntur. Samruninn fer fram þann 16. febrúar næstkomandi með flutningi allra verðbréfa í eigu Markaðsbréfa Landsbankans –stuttra í Markaðsbréf Landsbankans – löng. Eign hlutdeildarskírteinishafa verður flutt sjálfkrafa yfir í Markaðsbréf Landsbankans löng og enginn kostnaður fellur á hlutdeildarskírteinishafa við þessa aðgerð.
Beiðni um afskráningu sjóðsins Markaðsbréfa Landsbankans – stuttra hefur verið send Kauphöll.
Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Landsvaka hf. Ari Skúlason í síma 410-7406