Aðalfundur Farice ehf var haldinn þann 11.maí á skrifstofu félagsins að Smáratorgi 3, Kópavogi.
Helstu niðurstöður aðalfundar voru þessar:
-
Kynnt var skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra.
-
Ársreikningur fyrir árið 2011 var staðfestur.
-
Samþykkt var að tap félagsins yrði ráðstafað til lækkunar á eigin fé félagsins.
-
Samþykkt var tillaga um að þóknun fyrir stjórnarstörf yrði óbreytt, þ.e. kr. 75 þús á mánuði fyrir stjórnarmenn og kr. 150 þúsund á mánuði fyrir stjórnarformann.
- Í stjórn félagsins voru kjörnir:
Aðalmenn:
Karl Alvarsson,
Kristján Gunnarsson,
Magnús Bjarnason,
Ingþór Karl Eiríksson og
Pétur Ricther.
Varamenn:
Hafsteinn Hafsteinsson,
Kristin S. Konráðsdóttir,
Þorgerður Marinósdóttir,
Þórður Ólafur Þórðarson og
Guðrún Ögmundsdóttir.
- Samþykkt var tillaga um að endurskoðunarfélag félagsins yrði KPMG ehf.
Stjórn félagsins kom saman þennan sama dag og skipti með sér verkum þannig:
Formaður stjórnar: Karl Alvarsson
Varaformaður: Kristján Gunnarsson