Tap Reita II ehf. á árinu 2012 nam 1.929 milljónum króna samanborið við 1.321 milljón króna tap á árinu áður. Rekstrarhagnaður félagsins á árinu var 1.158 milljónir króna samanborið við 1.061 milljón króna á árinu 2011.
Neikvæð afkoma orsakast að miklu leyti af matsbreytingu fjárferstingareigna en mat á fjárfestingareignum félagsins lækkaði um 1.138 milljónir í árslok 2012. Móðurfélag Reita II ehf., Reitir fasteignafélag hf., hyggur á skráningu í Kauphöll á árinu 2013 í kjölfar endurfjármögnunar á hluta skulda samstæðunnar.
Lykiltölur:
- Heildareignir námu 19.660 milljónum króna þann 31. desember 2012 sem er lækkun um 1.189 milljónir króna frá árslokum 2011.
- Eigið fé félagsins er neikvætt um 27 milljónir króna í lok ársins.
- Rekstrartekjur ársins námu námu 1.671 milljónum króna samanborið við 1.617 milljónir króna árið áður.
Reitir II á og rekur 18 fasteignir á Íslandi og er félagið eitt af 7 dótturfélögum í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. í árslok 2012. Upplýsingar um afkomu samstæðunnar, Reita fasteignafélags, má finna á www.reitir.is.
Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 5. apríl 2013.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita, í síma 575 9000 og netfanginu einar@reitir.is.