Reykjavík, 3. febrúar, 2014 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega frá kauphöllum sínum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir janúar eru eftirfarandi:
· Viðskipti með hlutabréf í janúarmánuði námu 27.408 milljónum eða 1.246 milljónum á dag. Það er 17% hækkun frá fyrri mánuði, en í desember námu viðskipti með hlutabréf 1.066 milljónum á dag. Þetta er því sem næst engin breyting frá fyrra ári (viðskipti í janúar 2013 námu 1.245 milljónum á dag).
· Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair Group (ICEAIR), 8.177 milljónir, Haga (HAGA), 3.983 milljónir, Marel (MARL), 2.748 milljónir og Tryggingamiðstöðvarinnar (TM), 2.682 milljónir.
· Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 1,89% milli mánaða og stendur nú í 1.283 stigum.
· Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina 28,6% (16,7% á síðasta ári), Íslandsbanki með 22% (27,8% á síðasta ári), og Landsbankinn með 21,8% (20,5% á síðasta ári).
Í lok janúar voru hlutabréf 18 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 595 milljörðum króna (samanborið við 436 milljarða í janúar 2013).
· Viðskipti með skuldabréf námu 171 milljarði í síðasta mánuði sem samsvarar 7,8 milljarða veltu á dag. Þetta er 3% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í desember námu 7,6 milljörðum á dag), en 1% hækkun á milli ára (viðskipti í janúar 2013 námu 7,7 milljörðum á dag).
· Alls námu viðskipti með ríkisbréf 142,9 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 24,1 milljarði. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 33,1 milljarður, RIKB 22 1026, 22,3 milljarðar, RIKB 16 1013, 19,6 milljarðar og RIKS 21 0414, 19,5 milljarðar.
· Á skuldabréfamarkaði var MP banki með mestu hlutdeildina 20,8% (19,2% á síðasta ári), Straumur fjárfestingarbanki með 19,7% (14,8% á síðasta ári) og Arion banki með 18,5% (16,1% á síðasta ári).
· Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,08% í janúar og stendur í um 1.031 stigi. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 1,02% í mánuðinum en sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 0,51%.Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá viðhengi og http://nordic.nasdaqomxtrader.com/newsstatistics/
#
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.
Um NASDAQ OMX Group
NASDAQ OMX (NASDAQ:NDAQ) er leiðandi þjónustuveitandi á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. NASDAQ OMX gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. NASDAQ OMX er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 80 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. NASDAQ OMX er heimili meira en 3,300 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 7 billjón Bandaríkjdala og yfir 10.000 viðskiptavina að fyrirtækjaþjónustu. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com
Kristín Jóhannsdóttir
525 2844
kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com