Fjarskipti hf. : Frambjóðendur til stjórnar Vodafone


Eftirtaldir einstaklingar gefa kost á sér til stjórnar Vodafone (Fjarskipta hf.) vegna aðalfundar sem haldinn verður miðvikudaginn 26. mars 2014 kl 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica hóteli.
 
Framboð til aðalstjórnar:
  • Anna Guðný Aradóttir, kt. 110156-7669
  • Erna Eiríksdóttir, kt. 110963-2039
  • Heiðar Már Guðjónsson, kt. 220472-3889
  • Hildur Dungal, kt. 140571-3859
  • Hjörleifur Pálsson, kt. 281163-4269
  • Vilmundur Jósefsson, kt. 240849-7399
 
Framboð til varastjórnar:
  • Agla Elísabet Hendriksdóttir, kt. 300167-5869
  • Yngvi Halldórsson, kt. 300777-5039
 
Framboðsfrestur er nú útrunninn.
 
Í samþykktum Vodafone kemur fram að fimm einstaklingar skipa stjórn félagsins og tveir sitja í varastjórn. Sjálfkjörið er í varastjórn en kosið verður í aðalstjórn félagsins.
 
Kosningafyrirkomulag verður í formi margfeldiskosningar á milli þeirra einstaklinga sem í framboði eru í samræmi við c. lið 6. mgr. 63. gr. hlutafélagalaga og 3. mgr. 17. samþykkta Fjarskipta hf., þar sem ósk um slíkt kosningafyrirkomulag barst frá hluhafa sem ræður meira en 10% hlutafjár félagsins. 
 
Hlutafé félagsins er að nafnverði kr. 3.407.649.990. Hver hlutur er að fjárhæð kr. 10. Útgefnir hlutir eru því 340.764.999 og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Félagið á enga eigin hluti.
GlobeNewswire

Recommended Reading