Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning fyrir árið 2014 og uppgjör fjórða ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 26. febrúar 2015.
Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2014 og uppgjör fjórða ársfjórðungs.
Fundurinn verður haldinn föstudaginn 27. febrúar 2015 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:15.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.