Ársreikningur Byggðastofnunar 2014
Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2014, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 13. mars 2015.
Hagnaður ársins nam 349,2 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 20,2% en var 16,1% í lok árs 2013.
Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Í samræmi við hlutverk sitt vinnur stofnunin að undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna og veitingu lána með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins. Stofnunin getur einnig tekið þátt í gerð svæðisskipulags samkvæmt skipulagslögum.
Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2014
- Hagnaður ársins nam 349,2 milljónum króna.
- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 20,2% en skal að lágmarki vera 8%
- Hreinar vaxtatekjur voru 399,4 milljónir króna eða 49,1% af vaxtatekjum, samanborið við 437,4 milljónir króna (43,8% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2013.
- Laun og annar rekstrarkostnaður nam 387,1 milljónum króna samanborið við 373,6 milljónir árið 2013.
- Eignir námu 13.917 milljónum króna og hafa lækkað um 955,4 milljónir frá árslokum 2013. Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.822 milljónir.
- Skuldir námu 11.265 milljónum króna og lækkuðu um 1.304,6 milljónir á árinu.
- Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 18,8 milljónum króna.
Um ársreikninginn
Hagnaður ársins nam 349,2 milljónum króna. Skýrist hagnaður tímabilsins fyrst og fremst á lægri framlögum á afskriftarreikning útlána, matsbreytingu hlutabréfa og sölu fullnustueigna.
Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 20,2% í lok tímabilsins.
Horfur
Eiginfjárstaða stofnunarinnar er sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.
Umsóknir um nýjar lánveitingar jukust á árinu 2014 og er gert ráð fyrir áframhaldandi aukningu á lánveitingum á árinu 2015.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is
Lykiltölur úr ársreikningi
2014 | 2013 | 2012 | 2011 | 2010 | |
Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | |
Rekstrarreikningur | |||||
Vaxtatekjur | 813.793 | 998.367 | 1.239.328 | 1.325.644 | 1.211.531 |
Vaxtagjöld | 414.371 | 561.002 | 645.570 | 685.712 | 677.608 |
Hreinar vaxtatekjur | 399.422 | 437.365 | 593.757 | 639.933 | 533.922 |
Rekstrartekjur | 448.940 | 559.846 | 193.296 | 319.051 | 228.635 |
Hreinar rekstrartekjur | 848.362 | 997.211 | 787.054 | 958.983 | 762.558 |
Rekstrargjöld | 499.145 | 808.294 | 939.827 | 1.194.695 | 3.390.472 |
Hagnaður (-tap) ársins | 349.217 | 188.917 | -152.773 | -235.712 | -2.627.914 |
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbr. hlutafjár | |||||
Framl. í afskriftarr. útlána og matsbr. hlutaf | -117.243 | 50.960 | 444.940 | 710.772 | 2.894.164 |
Efnahagsreikningur | 31.12.2014 | 31.12.2013 | 31.12.2012 | 31.12.2011 | 31.12.2010 |
Eignir | |||||
Sjóður og kröfur á lánastofnanir | 2.062.688 | 2.421.208 | 2.213.327 | 2.464.230 | 1.875.859 |
Útlán | 10.821.632 | 11.570.492 | 13.421.549 | 14.214.991 | 14.063.814 |
Eignahlutir í félögum | 902.395 | 809.599 | 763.001 | 881.276 | 951.483 |
Aðrar eignir | 130.216 | 71.009 | 340.102 | 89.266 | 103.318 |
Eignir samtals | 13.916.931 | 14.872.307 | 16.737.980 | 17.649.763 | 16.994.474 |
Skuldir og eigið fé | |||||
Lántökur | 11.161.775 | 12.458.421 | 14.549.688 | 17.137.891 | 17.229.307 |
Aðrar skuldir | 103.500 | 111.448 | 74.769 | 245.578 | 263.161 |
Skuldir samtals | 11.265.275 | 12.569.868 | 14.624.458 | 17.383.468 | 17.492.468 |
Eigið fé | 2.651.656 | 2.302.439 | 2.113.522 | 266.295 | -497.993 |
Skuldir og eigið fé samtals | 13.916.931 | 14.872.307 | 16.737.980 | 17.649.763 | 16.994.474 |
Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings | 18.807 | 22.552 | 216.398 | 218.330 | 220.659 |
Sjóðstreymi | 2014 | 2013 | 2012 | 2011 | 2010 |
Handbært fé (-til) frá rekstri | 556.712 | 787.953 | 638.877 | 555.887 | -1.621.193 |
Fjárfestingarhreyfingar | 569.609 | 324.400 | 617.252 | 375.980 | 132.408 |
Fjármögnunarhreyfingar | -1.484.841 | -904.473 | -1.507.031 | -343.495 | 1.197.231 |
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé | -358.520 | 207.880 | -250.903 | 588.371 | -291.554 |
Handbært fé í ársbyrjun | 2.421.208 | 2.213.327 | 2.464.230 | 1.875.859 | 2.167.413 |
Handbært fé í árslok | 2.062.688 | 2.421.208 | 2.213.327 | 2.464.230 | 1.875.859 |
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði | 20,20% | 16,12% | 12,55% | 1,34% | -2,40% |