Rekstrarafkoma Sveitarfélagsins Árborgar árið 2014 er betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir og afgangur af rekstri samstæðunnar fimmta árið í röð. Fjármagnsgjöld nema 334 millj.kr. nettó, eða um 59,5 millj.kr. minna en áætlun gerði ráð fyrir. Afskriftir nema 368 millj.kr., en engu að síður er afgangur upp á 122,9 millj.kr. fyrir skatta sem er 63,5 millj.kr. hærra en gert var ráð fyrir í áætlun. Tekjuskattur nemur 20,5 millj.kr. en rekstrarniðurstaða samstæðunnar er jákvæð um 102,3 millj.kr., eða 42,7 millj.kr. betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.
Skuldir eru enn miklar og skuldahlutfallið 153%. Fjárfesting á árinu 2014 nam 1.403 millj.kr., veltufé frá rekstri var 744 millj.kr. og 728 millj.kr. greiddar í afborganir lána. Ný lán voru tekin að fjárhæð 1.390 millj.kr. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindingar hækkaði meira á milli ára en gert hafði verið ráð fyrir, sömuleiðis hækkaði lífeyrisskuldbinding sem hluti af skuldum sveitarfélagsins, eða um 135 millj.kr. á milli ára, sem er meiri hækkun nú en undanfarin ár. Áfram verður leitast við að vinna að hagræðingu í rekstri og lækkun skulda eins og kostur er.