Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar – júní 2015, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 27. ágúst 2015.
Hagnaður tímabilsins nam 36,5 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,38% en var 20,2% í lok árs 2014.
Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins. Beinar aðgerðir skv. 2. og 3. mgr. einskorðast við samþykkt stuðningssvæði á gildandi byggðakorti af Íslandi sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur samþykkt fyrir tiltekið tímabil.
Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar janúar – júní 2015
- Hagnaður tímabilsins nam 36,5 milljónum króna.
- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 21,38% en skal að lágmarki vera 8%
- Hreinar vaxtatekjur voru 220,8 milljónir króna eða 48,9% af vaxtatekjum, samanborið við 172,7 milljónir króna (41,6% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á sama tímabili 2014.
- Laun og annar rekstrarkostnaður nam 128,3 milljónum króna samanborið við 124,8 milljónir á sama tímabili 2014.
- Eignir námu 13.393 milljónum króna og hafa lækkað um 524,4 milljónir frá áramótum. Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.688 milljónir.
- Skuldir námu 10.704 milljónum króna og lækkuðu um 560,9 milljónir frá áramótum.
- Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 16,5 milljónum króna.
Um árshlutauppgjörið
Hagnaður tímabilsins nam 36,5 milljónum króna. Skýrist hagnaður tímabilsins fyrst og fremst á lægri framlögum á afskriftarreikning útlána og matsbreytingu hlutabréfa.
Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 21,38% í lok tímabilsins.
Horfur
Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja og einstaklinga á landsbyggðinni.
Umsóknir um nýjar lánveitingar jukust á tímabilinu og er gert ráð fyrir áframhaldandi aukningu á lánveitingum á árinu 2015 og 2016.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is
Lykiltölur
30.06.2015 | 31.12.2014 | 30.06.2014 | 2013 | 30.06.2013 | 2012 | |
Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | |
Rekstrarreikningur | ||||||
Vaxtatekjur | 451.645 | 813.793 | 414.984 | 998.367 | 527.278 | 1.239.328 |
Vaxtagjöld | 230.862 | 414.371 | 242.244 | 561.002 | 305.975 | 645.570 |
Hreinar vaxtatekjur | 220.784 | 399.422 | 172.741 | 437.365 | 221.303 | 593.758 |
Rekstrartekjur | 179.502 | 448.940 | 213.706 | 559.846 | 295.416 | 193.296 |
Hreinar rekstrartekjur | 400.285 | 848.362 | 386.446 | 997.211 | 516.719 | 787.054 |
Rekstrargjöld | 363.794 | 499.145 | 311.139 | 808.294 | 332.476 | 939.827 |
Hagnaður (-tap) | 36.491 | 349.217 | 75.307 | 188.917 | 184.243 | -152.773 |
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning | ||||||
útlána og matsbreyting hlutabréfa | -4.301 | -117.243 | -13.380 | 50.960 | -79.661 | 444.940 |
Efnahagsreikningur | 30.06.2015 | 31.12.2014 | 30.06.2014 | 31.12.2013 | 30.06.2013 | 31.12.2012 |
Eignir | ||||||
Sjóður og kröfur á lánastofnanir | 1.664.478 | 2.062.688 | 2.393.656 | 2.421.208 | 2.455.461 | 2.213.327 |
Útlán | 10.688.090 | 10.821.632 | 11.086.999 | 11.570.492 | 12.551.315 | 13.421.549 |
Eignahlutir í félögum | 966.761 | 902.395 | 910.838 | 809.599 | 758.165 | 763.001 |
Aðrar eignir | 73.209 | 130.216 | 114.779 | 71.009 | 81.680 | 340.102 |
Eignir samtals | 13.392.538 | 13.916.931 | 14.506.272 | 14.872.307 | 15.846.621 | 16.737.980 |
Skuldir og eigið fé | ||||||
Lántökur | 10.549.834 | 11.161.775 | 11.962.190 | 12.458.421 | 13.313.677 | 14.549.688 |
Aðrar skuldir | 154.557 | 103.500 | 166.336 | 111.448 | 235.180 | 74.769 |
Skuldir samtals | 10.704.392 | 11.265.275 | 12.128.526 | 12.569.868 | 13.548.857 | 14.624.458 |
Eigið fé | 2.688.147 | 2.651.656 | 2.377.746 | 2.302.439 | 2.297.765 | 2.113.522 |
Skuldir og eigið fé samtals | 13.392.538 | 13.916.931 | 14.506.272 | 14.872.307 | 15.846.621 | 16.737.980 |
Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings | 16.450 | 18.807 | 20.360 | 22.552 | 70.956 | 216.398 |
Sjóðstreymi | 30.06.2015 | 2014 | 30.06.2014 | 2013 | 30.06.2013 | 2012 |
Handbært fé frá rekstri | 38.940 | 556.712 | 224.716 | 787.953 | 394.668 | 638.876 |
Fjárfestingarhreyfingar | 212.022 | 569.609 | 257.989 | 324.400 | 200.071 | 617.252 |
Fjármögnunarhreyfingar | -649.171 | -1.484.841 | -510.256 | -904.473 | -352.606 | 1.507.030 |
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé | -398.210 | -358.520 | -27.551 | 207.880 | 242.134 | -250.903 |
Handbært fé í ársbyrjun | 2.062.688 | 2.421.208 | 2.421.208 | 2.213.327 | 2.213.327 | 2.464.230 |
Handbært fé í lok tímabils | 1.664.478 | 2.062.688 | 2.393.656 | 2.421.208 | 2.455.461 | 2.213.327 |
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki | 21,38% | 20,20% | 16,36% | 16,00% | 14,92% | 12,55% |