Aflaheimildir HB Granda fiskveiðiárið 2015/16


Samkvæmt úthlutun Fiskistofu fyrir fiskveiðiárið 2015/16 koma alls rúmlega 38.661 þorskígildistonn í hlut skipa HB Granda eða 10,12% af heildarúthlutuninni. Þetta er heldur lægra hlutfall en fiskveiðiárið á undan en þá voru þorskígildistonnin 40.125 og hlutdeildin í heildarkvótanum var á 10,67%. Að þessu sinni eykst þorskvótinn mest eða um 909 tonn á milli ára. Ýsukvótinn eykst einnig en samdráttur er í kvóta á ufsa, grálúðu og íslenskri sumargotssíld.

Úthlutun Fiskistofu hvað varðar HB Granda fiskveiðiárið 2015/16 með samanburði við nýliðið fiskveiðiár er sem hér segir:

    Úthlutun tonn    
    2015/16 2014/15 Mismunur
Botnfiskur        
Þorskur   9.443 8.534 909
Ýsa   1.910 1.596 315
Ufsi   7.684 8.103 (419)
Gullkarfi   13.448 13.704 (256)
Djúpkarfi   3.086 3.086 0
Grálúða   1.423 1.618 (195)
Gulllax   2.473 2.473 0
Aðrar tegundir innan kvóta   1.098 1.104 (5)
    40.566 40.217 348
Uppsjávarfiskur        
Síld   6.818 8.634 (1.816)
         

Vert er að taka fram að umrædd úthlutun tekur aðeins til botnfisks og íslenskrar sumargotssíldar sem úthlutað er innan fiskveiðiársins. Kvótum í deilistofnum, s.s. norsk-íslenskri síld, makríl, kolmunna, loðnu og úthafskarfa er úthlutað sérstaklega og hið sama á við um  veiðiheimildir á þorski í Barentshafi.

 

 

GlobeNewswire

Recommended Reading

  • Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2026
  • Flöggun: Ívar ehf.