Framhaldsaðalfundur HB Granda hf. verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl 2016 í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku.
Dagskrá
- Kjör stjórnar skv. 5. gr. samþykkta félagsins.
Atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað frá kl. 16:30 á fundardegi.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn, geta:
a) veitt öðrum skriflegt umboð
b) greitt atkvæði skriflega
Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Aðrar upplýsingar
Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Framboðum skal skila á skrifstofu HB Granda hf, Norðurgarði 1 eða á netfangið adalfundur2016@hbgrandi.is. Tilkynnt verður um framkomin framboð tveimur dögum fyrir fundinn.
Frekari upplýsingar um fundinn og skjöl sem honum tengjast, eru hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og á skrifstofu þess á venjulegum skrifstofutíma.
Um frekari upplýsingar vísast til fundarboðs aðalfundarins sem er að finna á vefsíðu félagsins, www.hbgrandi.is.
Stjórn HB Granda hf.