Mánudaginn, 20. júní, var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði.
Frá 1. júlí 2016 hefur Landsbankinn hf. heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með Íbúðabréf".
- Aðalmiðlari hefur einn aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir.
- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð, að lágmarki skv. eftirfarandi töflu og að nafnvirði, í hvern flokk Íbúðabréfa í Nasdaq OMX á Íslandi.
| Flokkur | Nafnverð |
| HFF150224 | 70.000.000 |
| HFF150434 | 60.000.000 |
| HFF150644 | 55.000.000 |
- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningnum.
- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 300 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
Samningurinn gildir frá 1. júlí 2016 til 30. júní 2017.