Stjórnarformaður Íbúaðlánasjóðs hefur beðist lausnar úr stjórn sjóðsins


Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, formaður stjórnar Íbúðalánasjóðs, hefur beðist lausnar úr stjórn Íbúðalánasjóðs. Ingibjörg Ólöf mun á næstunni taka við nýju starfi á erlendum vettvangi. 

Núverandi varaformaður stjórnar, Sigurbjörn Ingimundarson mun taka við formennsku í stjórninni tímabundið þar til ráðherra hefur skipað á ný í stjórnina.

GlobeNewswire