Í 41. viku 2017 keypti Síminn hf. 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 39.850.000 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 12.10.2017 | 14:22 | 5.000.000 | 4,01 | 20.050.000 | 153.354.722 |
| 13.10.2017 | 14:39 | 5.000.000 | 3,96 | 19.800.000 | 158.354.722 |
| 10.000.000 | 39.850.000 |
Síminn átti 148.354.722 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 158.354.722 eigin hluti eða sem nemur 1,68% af útgefnum hlutum í félaginu.
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 15. maí 2017.
Síminn hefur keypt samtals 236.111.878 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 954.340.988 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.102 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2018, en þó aldrei lengur en til 16. mars 2018 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is