Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðureiknings verði 544 m.kr. og rekstarniðurstaða A-hluta bæjasjóðs 110 m.kr. Fjárfest verði fyrir 1.850 m.kr. og að skuldahlutfall nemi 81,1% og skuldaviðmið 65,5%. Framlegð nemi 14,7% og veltufé frá rekstri 12,4%. Jafnframt því sem næsta árs áætlun er lögð fram er lögð fram áætlun til næstu 3ja ára þar á eftir.
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar fimmtudaginn 2. nóvember nk. og síðari umræða fer fram fimmtudaginn 7. desember 2017.
Recommended Reading
-
Garðabær hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum GARD 11 1. Heildartilboð í GARD 11 1 voru samtals 2.120 m.kr. að nafnvirði. Ákveðið var að taka tilboðum samtals að nafnvirði 1.068 m.kr. á...
Read More -
Garðabær leiðréttir hér með fyrri tilkynningu um niðurstöðu úr útboði á skuldabréfaflokknum GARD 11 1. Upplýsingar í fyrri tilkynningu voru rangar og eru hér með leiðréttar. Garðabær hefur lokið...
Read More