Skuldabréfaútboð - RARIK 150538


Skuldabréfaútboð - RARIK 150538

RARIK ohf. hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokknum RARIK 150538. Skuldabréfin eru til 20 ára og greiðast til baka með jöfnum afborgunum, verðtryggð með vísitölu neysluverðs.

Útboðið verður haldið þriðjudaginn 12. júní 2018. Útboðsaðferðin er „hollensk“, þ.e. lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverði. Skila þarf tilboðum til verðbréfamiðlunar Íslandsbanka fyrir kl. 16.00 á fyrrnefndum degi, í síma 440 4499 eða með tölvupósti til vbm@islandsbanki.is.

Stefnt er að því að taka tilboðum að fjárhæð að fjárhæð á bilinu 3 til 6 milljarðar króna. Félagið áskilur sér þó rétt til að hækka eða lækka fjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Skuldabréfaflokkurinn verður skráður rafrænt hjá Nasdaq Verðbréfamiðstöð þriðjudaginn 18. júní 2018 og mun uppgjör fara fram þann sama dag.

Íslandsbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og útboði skuldabréfanna auk töku þeirra til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:
Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri
Sími: 528-9000