Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar-júní 2018, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 24. ágúst 2018.
Hagnaður tímabilsins nam 62,7 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,73% en var 23,57% í lok árs 2017.
Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.
Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar janúar-júní 2018
- Hagnaður tímabilsins nam 62,7 milljónum króna.
- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 21,73% en skal að lágmarki vera 8% skv. lögum um fjármálafyrirtæki. Þá skal stofnunin viðhalda 2,25% verndunarauka og 1,25% sveiflujöfnunarauka að auki sem hækkar í 1,75% frá 15. maí 2019
- Hreinar vaxtatekjur voru 227,6 milljónir króna eða 44,4% af vaxtatekjum, samanborið við 214,1 milljónir króna (48,6% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2017.
- Laun og annar rekstrarkostnaður nam 265,8 milljónum króna samanborið við 229,4 milljónir árið 2017.
- Eignir námu 14.882 milljónum króna og hafa hækkað um 1.749 milljónir frá árslokum 2017. Þar af voru útlán 12.078 milljónir samanborið við 10.464 milljónir í lok árs 2017.
- Skuldir námu 11.812 milljónum króna og hækkuðu um 1.686 milljónir frá árslokum 2017.
Horfur
Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is
Lykiltölur úr árshlutareikningi og samanburður við fyrri ár
30.6.2018 | 2017 | 30.6.2017 | 2016 | 30.6.2016 | 2015 | ||
Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | ||
Rekstrarreikningur | |||||||
Vaxtatekjur | 512.974 | 855.106 | 440.926 | 805.887 | 425.326 | 837.787 | |
Vaxtagjöld | 285.375 | 428.828 | 226.803 | 375.330 | 208.151 | 382.996 | |
Hreinar vaxtatekjur | 227.599 | 426.278 | 214.123 | 430.558 | 217.175 | 454.791 | |
Rekstrartekjur | 296.438 | 549.588 | 237.699 | 509.380 | 213.738 | 385.120 | |
Hreinar rekstrartekjur | 524.037 | 975.866 | 451.822 | 939.937 | 430.912 | 839.911 | |
Rekstrargjöld | 461.344 | 876.235 | 471.892 | 782.821 | 385.829 | 741.021 | |
Hagnaður (-tap) ársins | 62.693 | 99.631 | -20.070 | 157.116 | 45.084 | 98.891 | |
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbreyting hlutafjár | |||||||
Framl. í afskriftarr. útlána og matsbr. hlutaf. | 25.226 | 111.179 | 82.239 | 83.184 | 20.130 | 61.012 | |
Efnahagsreikningur | 30.6.2018 | 31.12.2017 | 30.6.2017 | 31.12.2016 | 30.6.2016 | 31.12.2015 | |
Eignir | |||||||
Bankainnistæður | 1.188.208 | 1.089.861 | 1.709.560 | 2.757.542 | 1.352.940 | 3.081.232 | |
Útlán til viðskiptavina | 12.078.084 | 10.463.653 | 10.008.823 | 9.679.575 | 10.160.966 | 9.638.018 | |
Fullnustueignir | 330.010 | 340.510 | 385.010 | 445.552 | 507.510 | 669.510 | |
Veltuhlutabréf | 564.108 | 594.926 | 639.065 | 683.414 | 376.639 | 372.768 | |
Hlutdeildarfélög | 647.421 | 576.288 | 540.458 | 499.258 | 746.599 | 574.736 | |
Skuldunautar | 4.535 | 14.147 | 6.470 | 18.689 | 7.185 | 25.127 | |
Varanlegir rekstrarfjármunir | 69.416 | 53.858 | 62.168 | 56.194 | 61.727 | 55.384 | |
Eignir samtals | 14.881.780 | 13.133.244 | 13.351.555 | 14.140.223 | 13.213.566 | 14.416.775 | |
Skuldir og eigið fé | |||||||
Lántökur og skuldabréfaútgáfur | 11.641.706 | 9.920.045 | 10.303.458 | 11.003.741 | 10.260.559 | 11.495.402 | |
Óráðstöfuð framlög | 60.030 | 130.852 | 92.607 | 141.783 | 82.847 | 120.629 | |
Aðrar skuldir | 110.057 | 75.053 | 67.896 | 87.037 | 74.530 | 50.197 | |
Skuldir samtals | 11.811.793 | 10.125.951 | 10.463.962 | 11.232.561 | 10.417.936 | 11.666.228 | |
Eigið fé | 3.069.987 | 3.007.293 | 2.887.593 | 2.907.663 | 2.795.630 | 2.750.547 | |
Skuldir og eigið fé samtals | 14.881.780 | 13.133.244 | 13.351.555 | 14.140.223 | 2.795.630 | 14.416.775 | |
Sjóðstreymi | 30.6.2018 | 2017 | 30.6.2017 | 2016 | 30.6.2016 | 2015 | |
Handbært fé (-til) frá rekstri | -10.848 | 290.075 | 151.600 | 241.768 | 77.254 | 207.394 | |
Fjárfestingarhreyfingar | -1.436.272 | -765.620 | -511.135 | -738.880 | -510.014 | 373.684 | |
Fjármögnunarhreyfingar | 1.545.468 | -1.192.136 | -688.446 | 173.422 | -1.295.531 | 437.466 | |
Hækkun/(-lækkun) á handb. fé | 98.347 | -1.667.681 | -1.047.981 | -323.690 | -1.728.291 | 1.018.544 | |
Handbært fé í ársbyrjun | 1.089.861 | 2.757.542 | 2.757.542 | 3.081.232 | 3.081.232 | 2.062.688 | |
Handbært fé í árslok/lok tímabils | 1.188.208 | 1.089.861 | 1.709.560 | 2.757.542 | 1.352.940 | 3.081.232 | |
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki | 21,73% | 23,57% | 23,06% | 22,74% | 21,73% | 21,56% |
Viðhengi