Breyting á framkvæmdastjórn


Ákveðið hefur verið að gera breytingar á markaðs- og sölustarfi HB Granda.  Brynjólfur Eyjólfsson lætur af starfi framkvæmdastjóra markaðssviðs félagsins í dag og eru honum þökkuð vel unnin störf við uppbyggingu á öflugu markaðsstarfi félagsins á undanförnum árum.  Guðmundur Kristjánsson, forstjóri félagsins tekur við stjórn sviðsins á meðan endurskoðun á markaðs- og sölustarfi félagsins stendur yfir. 

Recommended Reading

  • Brim: Fjárhagsdagatal ársins 2026
  • Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025