Fljótsdalshérað, fjárhagsáætlun 2019-2022 seinni umræða


Fjárhagsáætlun 2019 – 2022

Tillaga fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 ásamt 3ja ára áætlun fyrir 2020-2022 lögð fram til seinni umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs á fundi þann 21. nóvember 2018 kl 17.00. 

Breytingar hafa orðið frá þeirri áætlun sem lögð var fram til fyrri umræðu sem eru þær að fjárfestingar á árinu 2019 hjá Hitaveitu Egilsstaða og Fella (HEF) lækka og nema 143 millj. kr. í stað 209 við fyrri umræðu.  Lánfjárþörf HEF lækkar samsvarandi á árinu 2019 og verður 25 millj. kr. í stað 100 millj. kr. í áætlun sem lögð var fram við fyrri ummræðu auk þess sem að ekki verður þörf fyrir lántöku á árinu 2021 hjá HEF.  Áhrif þessara breytinga á rekstarniðurstöðu samstæðu A og B hluta á árinu 2019 eru óveruleg og nemur afgangur af rekstri samstæðunnar 161 millj. kr. líkt og við fyrri umræðu. 

Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.

Attachment


Attachments

Fljótsdalshérað 2019 til 2022_seinni umræða 21. nóv
GlobeNewswire