Marel - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun


Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 49 keypti Marel hf. 851.112 eigin hluti að kaupverði 336.543.870 kr. eins og nánar er tilgreint hér á eftir:


DagsetningTímiKeyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
5.12.201809:37:58140.500402,0056.481.000
5.12.201809:40:35143.204402,0057.568.008
6.12.201809:31:27100.000395,2539.525.000
6.12.201809:37:41100.000395,2539.525.000
6.12.201809:55:4983.704395,2533.084.006
7.12.201812:07:04283.704389,00110.360.856
Samtals 851.112 336.543.870


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. desember 2018 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Marel hf., þann 22. nóvember 2018.

Marel hf. átti 6.690.550 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 7.541.662 eigin hluti eða sem nemur 1,10% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 851.112 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,12% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 336.543.870 kr.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.305.940 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 4. desember 2018 til og með 5. mars 2019.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Fjárfestatengsl:

Nánari upplýsingar veita Tinna Molphy og Marinó Þór Jakobsson í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563-8001.


GlobeNewswire