Marel: Sterk staða á vaxandi markaði, 7% tekjuvöxtur og 13,5% EBIT


Helstu atriði:

Árið 2019 – Áframhaldandi vöxtur í þjónustutekjum

  • Pantanir námu 1.222,1 milljónum evra (2018: 1.184,1m).
  • Tekjur námu 1.283,7 milljónum evra (2018: 1.197,9m).
  • EBIT* nam 173,4 milljónum evra (2018: 175,2m), sem var 13,5% af tekjum (2018: 14,6%).
  • Hagnaður nam 110,1 milljónum evra (2018: 122,5m).
  • Hagnaður á hlut (EPS) var 15,33 evru sent (2018: 17,95 evru sent).
  • Handbært fé frá rekstri nam 189,8 milljónum evra (2018: 205,8m).
  • Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) var x0,4 í lok árs (2018: x2,0). Markmið félagsins um fjármagnsskipan er að halda skuldahlutfalli milli x2-3.
  • Pantanabókin stóð í 414,4 milljónum evra við lok árs (2018: 476,0m).

Fjórði ársfjórðungur 2019 – Rekstrarafkoma undir væntingum

  • Pantanir námu 302,6 milljónum evra (4F18: 296,0m).
  • Tekjur námu 320,1 milljónum evra (4F18: 330,8m).
  • EBIT* nam 32,0 milljónum evra (4F18: 48,2m), sem var 10,0% af tekjum (4F18: 14,6%).
  • Hagnaður nam 10,2 milljónum evra (4F18: 38,0m).
  • Hagnaður á hlut (EPS) var 1.34 evru sent (4F18: 5,61 evru sent).
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 60,2 milljónum evra (4F18: 62,2m).
  • Frjálst sjóðstreymi nam 44,0 milljónum evra (4F18: 40,5m).
  • Allar tölur eru í samræmi við áður birt óendurskoðað bráðabirgðauppgjör Marel, fyrir utan frjálst sjóðstreymi sem var 9 milljónum evra lægra.

*Rekstrarniðurstaða aðlöguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtökum (PPA).

Ítarlegri umfjöllun um rekstur og afkomu félagsins má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar (íslenska útgáfan veitir aðeins yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal).

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

Tekjur ársins 2019 voru tæplega 1,3 milljarðar evra sem þýðir 7% tekjuvöxt frá fyrra ári, á meðan EBIT lækkaði örlítið á milli ára. Undanfarnir 18 mánuðir hafa verið býsna krefjandi þar sem markaðsaðstæður lituðust af umróti á heimsmörkuðum og viðskiptahindrunum. Stöðug nýsköpun og náið samstarf við viðskiptavini um heim allan hafa gert okkur kleift að halda áfram vegferð okkar að umbreyta matvælaframleiðslu.

Fyrstu vikur ársins 2020 gefa góð fyrirheit um framhaldið, einkum í kjúklingaiðnaði þar sem fjárfestingarþörf er augljóslega að aukast. Við áttum frábæra síðustu viku á IPPE kjúklinga- og kjötsýningunni í Atlanta í Bandaríkjunum. Þar frumsýndum við nokkrar tímamótalausnir sem munu auka sjálfvirkni og bæta nýtingu afurða sem framleiddar verða á öruggan og sjálfbæran hátt. Þessi sýning var ein sú allra besta og skilaði okkur pöntunum og fjölmörgum spennandi framtíðarverkefnum. Eitt slíkt er samningur okkar við Bell & Evans um hönnun og uppbyggingu á nýrri og byltingarkenndri hátækni kjúklingaverksmiðju í Bandaríkjunum.

Vegna breytinga í tekjusamsetningu milli vörutegunda og heimshluta á síðasta ári jókst kostnaður sem hafði áhrif á framlegð og rekstrarkostnað og leiddi til lægri rekstrarniðurstöðu á fjórða ársfjórðungi 2019. Við aukum nú framleiðslu skref fyrir skref og búumst við því að tekjur og rekstrarniðurstaða fari jafnt og þétt batnandi á árinu. Í ljósi fjárfestingar félagsins í innviðum og hugbúnaði erum við í góðri stöðu til að hagræða í framleiðslu og stoðsviðum á meðan við höldum áfram fjárfestingum í stafrænni vegferð og framlínu félagsins í sölu og þjónustu til viðskiptavina.

Heilt á litið var 2019 viðburðaríkt ár þar sem við styrktum grundvöll félagsins með fjárfestingum og aðgerðum í samræmi við stefnu félagsins. Vel heppnuð skráning hlutabréfa Marel í Euronext kauphöllinni í Amsterdam í júní, og ný langtímafjármögnun upp á 700 milljónir evra sem við tilkynnum um í dag, munu styðja vel við metnaðarfull vaxtar- og afkomuáform okkar fram til ársins 2026.“ 

Marel semur um langtímafjármögnun að fjárhæð 700 milljónum evra, með tengingu við sjálfbærnimarkmið félagsins

Marel hefur undirritað samning um nýja sambankalánalínu að fjárhæð 700 milljónum evra sem veitir félaginu aukinn rekstrarlegan sveigjanleika og styður við langtímavaxtarmarkmið félagsins. Með samningnum hefur Marel tryggt langtímafjármögnun fyrir félagið á hagstæðari kjörum en áður.

Vaxtakjör eru EURIBOR/LIBOR + 80 punktar og munu þau taka breytingum í samhengi við skuldsetningarhlutfall (e. leverage ratio) félagsins og notkun lánalínunnar. Vaxtakjör nýja lánsins eru einnig tengd árangri Marel við að ná fram markmiðum um sjálfbærni, samkvæmt fyrirfram ákveðnum mælikvörðum á frammistöðu (e. key performance indicators). Búast má við því að fjármögnunarkostnaður félagsins muni lækka til lengri tíma litið í ljósi hagstæðari lánakjara.

Þátttakendur í lánalínunni eru sjö leiðandi bankar á alþjóðlega vísu og eru það ABN AMRO, BNP Paribas, Danske Bank, HSBC, ING Bank, Rabobank and UniCredit sem taka þátt.  Þessir bankar falla vel að alþjóðlegri starfsemi Marel og eru vel í stakk búnir að styðja við starfsemi félagsins til lengri tíma litið.

Vel heppnuð skráning Marel í kauphöllina í Amsterdam

Öllum lykilmarkmiðum tvískráningarinnar i Euronext kauphöllina í Amsterdam var náð, þar má helst nefna aukið aðgengi að breiðari hópi alþjóðlegra fjárfesta (frá 3% á aðalfundi Marel 2018 upp í 30% eftir tvískráningu), sýnileika félagsins og umfjöllun greiningaraðila (í dag fylgja níu greiningaraðilar félaginu), sem og að ná fram auknum seljanleika bréfanna á alþjóðavísu sem veitir félaginu gjaldmiðil í tengslum við fyrirtækjakaup sem styður við fyrirætlanir félagsins um langtímavöxt og virðisaukningu.

Yfir 4.700 fjárfestar tóku þátt í útboðinu, en til samanburðar voru hluthafar félagsins um 2.500 talsins fyrir tvískráninguna.

Lokaverð í hlutafjárútbóðinu var ákveðið 3,7 evrur á hlut, verð í fyrstu viðskiptum nam 3,85 þann 7. júní 2019 en lokagengi á fyrsta viðskiptadegi nam 3,90 evrum á hlut. Virkur eftirmarkaður hefur verið með bréf Marel en verð hlutabréfanna var EUR 4,25 evrur við lokun markaðar í Amsterdam þann 4. febrúar 2020.

Tillaga um arðgreiðslu

Stjórn Marel mun leggja til við aðalfund félagsins, sem haldinn verður þann 18.mars nk., að hluthafar fái greiddan arð fyrir rekstrarárið 2019 sem nemur 5,79 evru sentum á hlut. Áætluð heildararðgreiðsla nemur um 44,0 milljónum evra sem samsvarar um það bil 40% af hagnaði ársins, sem nam 110,1 milljónum evra. Tillagan er í samræmi við markmið félagsins um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu.

Verði tillagan samþykkt af hluthöfum félagsins, munu hlutabréf sem skipta um hendur frá og með 20. mars 2020 (e. ex-date = arðleysisdagur) verða án arðsréttinda og réttur hluthafa til arðgreiðslu verður miðaður við hlutaskrá félagsins í lok viðskipta þann 23. mars 2020 sem yrði arðsréttindadagur (e. record date). Stjórn Marel leggur til að arður verði greiddur út þann 8. apríl 2020 (e. payment date).

Hluthafar í Marel sem eiga bréf í Euronext kauphöllinni í Amsterdam fá arðgreiðslu í evrum. Hluthafar í Marel sem eiga bréf á Nasdaq Iceland fá arðgreiðslu í íslenskum krónum, sem byggir á EUR/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands eins og það er tilgreint á hluthafafundi félagsins.

Horfur

Markaðsaðstæður hafa verið einstaklega góðar á síðustu árum en síðustu 18 mánuðir hafa verið krefjandi í ljósi umróts á heimsmörkuðum. Marel býr að góðri dreifingu tekna á milli markaða og iðnaða í gegnum alþjóðlegt sölu- og þjónustunet sitt ásamt breiðu og framsæknu vöru- og þjónustuframboði. Marel gerir ráð fyrir auknum tekjum og bættri arðsemi jafnt og þétt eftir því sem líður á árið 2020.

Marel stefnir að um 40% framlegð (e. gross profit), 18%  sölu-, markaðs- og stjórnunarkostnaði og 6% þróunarkostnaði, til meðallangs tíma.

Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.

  • Marel gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.
  • Gera má ráð fyrir að áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi geti stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári.
  • Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur.

Áætlaður vöxtur er háður hagsveiflum og þeim tækifærum sem eru í boði hverju sinni og því má gera ráð fyrir að hann verði því ekki línulegur. Reikna má með breytilegri afkomu á milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.

Afkomuefni

Ítarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar sem er í viðhengi. Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

Fjárfestafundur

Fimmtudaginn 6. febrúar 2020 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni.

Afkomufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9 í Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Fundinum verður einnig vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7437 (Aðgangskóði ef hringt er frá Íslandi: 46320121)
  • NL: +31 20 721 9495
  • UK: +44 33 3300 9270
  • US: +1 833 526 8395

Fjárhagsdagatal

Marel mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör félagsins samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:

  • Aðalfundur – 18. mars 2020
  • 1F 2020 – 20. apríl 2020
  • 2F 2020 – 22. júlí 2020
  • 3F 2020 – 20. október 2020
  • 4F 2020 – 3. febrúar 2021

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar. Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001. 

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á hlutabréfum í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

Gögn um markaðshlutdeild

Yfirlýsingar um markaðshlutdeild, þar með taldar þær sem varða samkeppnisstöðu Marel, byggjast á utanaðkomandi heimildum og gögnum, svo sem gögnum frá rannsóknastofnunum, iðnaðar- og sölunefndum og hópum, ásamt mati stjórnenda Marel. Séu upplýsingar ekki tiltækar fyrir Marel kunna slíkar yfirlýsingar að vera byggðar á áætlunum og mati utanaðkomandi aðila og/eða stjórnenda. Markaðsstaða er byggð á sölutölum nema annað sé tekið fram.

Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.


Viðhengi


Attachments

Marel 2019 Consolidated Financial Statements_vF Marel_2019 Consolidated Financial Statements EXCEL Marel Q4 2019 Press Release_vF.pptx