DAGSKRÁ
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2019.
- Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2019.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðunarfélags.
- Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
- Önnur mál.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
TILLÖGUR
Um greiðslu arðs:
Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2020 vegna rekstrarársins 2019 verði greiddar 1,15 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 563 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23.
Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 27. mars 2020, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 31. mars.
Arðleysisdagurinn er 30. mars.
Um þóknun til stjórnarmanna:
Þóknun til stjórnarmanna verði 210.000 kr. á mánuði árið 2020, formaður fái þrefaldan hlut.
Um endurskoðunarfélag:
PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.
Um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum:
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 27. mars 2020 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.
Attachment