Vátryggingafélagi Íslands hf. hefur borist tilkynning frá Arion banka sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins. Samkvæmt tilkynningunni er ekki lengur þörf til að beita heimild í samningnum um að víkja frá skilyrðum samningsins hvað varðar verðbil og fjárhæðir vegna óviðráðanlegra aðstæðna, sbr. tilkynningu frá 12.03.2020. Gilda því ákvæði samningsins um verðbil og fjárhæðir að nýju.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, með tölvupósti erlat@vis.is og í síma 660-5260.
Recommended Reading
-
Skagi mun birta uppgjör ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í...
Read More -
Tilnefningarnefnd Skaga auglýsir eftir framboðum eða tilnefningum til stjórnar Skaga vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026. Frestur til að skila inn framboðum og...
Read More