Vátryggingafélagi Íslands hf. hefur borist tilkynning frá Kviku banka sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins. Samkvæmt tilkynningunni er ekki lengur þörf til að beita heimild í samningnum um að víkja frá skilyrðum samningsins hvað varðar verðbil og fjárhæðir vegna óviðráðanlegra aðstæðna, sbr. tilkynningu frá 12.03.2020. Gilda því ákvæði samningsins um verðbil og fjárhæðir að nýju.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, með tölvupósti erlat@vis.is og í síma 660-5260.
Recommended Reading
-
Verulegur afkomubati af grunnrekstri Metár í tryggingastarfsemi að baki Afkoma ársins 2025 og 4F hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2025 Samstæðan Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr....
Read More -
Skagi mun birta uppgjör ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í...
Read More