Niðurstaða skuldabréfaútboðs
RARIK ohf. hefur nú lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokkum með auðkenni RARIK 011025 og RARIK 011040. Heildareftirspurn nam samtals 10.790 milljónum króna að nafnverði í báða flokka.
Í skuldabréfaflokknum RARIK 011025, sem er óverðtryggður flokkur til 5 ára og fylgir 20 ára afborgunarferli, nam eftirspurn 4.220 milljónum króna að nafnverði á veginni meðalávöxtunarkröfu 3,23%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnverði 3.120 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 3,10%.
Í skuldabréfaflokknum RARIK 011040, sem er verðtryggður flokkur til 20 ára, nam eftirspurn 6.570 milljónum króna að nafnverði á veginni meðalávöxtunarkröfu 0,94%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnverði 1.780 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 0,85%.
Stefnt er að uppgjöri viðskipta 1. október 2020.
Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og útboði skuldabréfanna auk töku þeirra til viðskipta.
Frekari upplýsingar veitir:
Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri
Sími: 528-9000