Marel hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaðar þann 20. október 2020.
Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum
Miðvikudaginn 21. október 2020 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.
Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.
Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:
- IS: +354 800 7520
- NL: +31 20 721 9496
- UK: +44 33 3300 9035
- US: +1 833 823 0586
Fjárhagsdagatal
- 3F 2020 – 20. október 2020
- 4F 2020 – 3. febrúar 2021
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Eftir kaupin á TREIF sem tilkynnt var um 4. september 2020, starfa um 6.800 manns hjá Marel í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á hlutabréfum í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.