Þann 23. febrúar síðastliðinn tilkynnti TM hf. að undirrituð hefði verið samrunaáætlun vegna fyrirhugaðs samruna Kviku, TM hf. og Lykils fjármögnunar hf. Þar kom og fram að eftirfarandi fyrirvarar í samrunasamningi félaganna frá 25. nóvember sl. væru enn óuppfylltir:
- Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) veiti samþykki fyrir samrunanum, sbr. 106 gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002;
- FME veiti Kviku samþykki fyrir eignarhaldi á virkum eignarhlut í TM tryggingum hf., TM líftryggingum hf. og Íslenskri endurtryggingu hf., sbr. 58 gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016;
- Samkeppniseftirlitið ógildi ekki samrunann eða setji íþyngjandi skilyrði að mati samrunaaðila, sbr. V. kafla samkeppnislaga nr. 44/2005; og
- hluthafar samþykki samrunann í samræmi við 93. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 á löglega boðuðum hluthafafundum Kviku, TM og Lykils.
Í dag, 26. febrúar 2021, tilkynnti Samkeppniseftirlitið um þá ákvörðun sína eftirlitið teldi ekki forsendur til að aðhafast vegna fyrirhugaðs samruna félaganna þriggja og er því sá fyrirvari í samrunasamningi félaganna ekki lengur fyrir hendi.