Dagskrá
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2020.
- Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2020.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðunarfélags.
- Önnur mál.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
TILLÖGUR
Um greiðslu arðs:
Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2021 vegna rekstrarársins 2020 verði greiddar 1,25 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 625 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23.
Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 28. maí 2021, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 1. júní.
Arðleysisdagurinn er 31. maí.
Um þóknun til stjórnarmanna:
Þóknun til stjórnarmanna verði 235.000 kr. á mánuði árið 2021, formaður fái þrefaldan hlut.
Um endurskoðunarfélag:
PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.
Viðhengi