Sveitarfélagið Árborg tilkynning - niðurstaða útboðs 10.06.2021


Sveitarfélagið Árborg gefur út fyrsta sjálfbærni skuldabréf á Íslandi

Sveitarfélagið Árborg hefur gefið út sjálfbærni skuldabréf (GBS) með auðkennið ARBO 31 GSB. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með jöfnum greiðslum afborgana og vaxta, á sex mánaða fresti og föstum ársvöxtum. Lokagjalddagi er 16. júní 2031.

Seld hafa verið skuldabréf í flokknum að fjárhæð 1.400 m.kr. að nafnvirði. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 1,35%. Heildareftirspurn í útboðinu var að nafnvirði 3.140 m.kr.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 16. júní 2021. Áætlað er að skuldabréfin verið tekin til viðskipta á Sjálfbærni markað Nasdaq Iceland hf. mánudaginn 21. júní 2021, en Nasdaq Iceland hf. mun tilkynna fyrsta viðskiptadag með minnst eins dags fyrirvara.

Sveitarfélagið Árborg er fyrsti útgefandinn til að gefa út sjálfbærni skuldabréf hér á landi til fjármögnunar á verkefnum sem hafa umhverfis og/eða félagslegan ávinning. Skuldabréfin eru gefin út í þeim tilgangi að fjármagna græn og/eða félagsleg verkefni í samræmi við Sjálfbærniumgjörð Árborgar (e. Sustainable Finance Framework).

Sveitarfélagið Árborg hefur birt sjálfbæra fjármálaumgjörð, sem lýsir nálgun sveitarfélagsins í sjálfbærri fjármögnun. Umgjörðin samræmist alþjóðlegum viðmiðum Alþjóðasamtaka aðila á verðbréfamarkaði (ICMA) og hefur hlotið óháða vottun (e. Second Party Opinion) frá Sustainalytics, sem er leiðandi viðurkenndur vottunaraðili í sjálfbærum fjármálum á heimsvísu. Umgjörðin byggir á áætlunum sveitarfélagsins í umhverfisvænni og félagslegri uppbyggingu.

Landsbankinn hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á „sustainable bond“ markað Nasdaq á Íslandi.

Nánari upplýsingar veita:


Ingibjörg Garðarsdóttir, fjármálastjóri Árborgar, í síma 480 1900 eða inga@arborg.is

Gunnar S. Tryggvason, Markaðsviðskipti Landsbankans, í síma 410 6709 eða gunnars@landsbankinn.is