Brim: Birting ársreiknings 2021, fimmtudaginn 24. febrúar 2022


Brim mun birta ársreikning félagsins eftir lokun markaða fimmtudaginn 24. febrúar 2022.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 24. febrúar næstkomandi og hefst kl. 16:00, þar mun Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynna uppgjör félagsins.

Fundurinn verður eingöngu rafrænn og hægt verður að fylgjast með fundinum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@brim.is. Spurningum verður svarað í lok fundar.

Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 858-1170 eða fjarfestatengsl@brim.is