Sveitarfélagið Árborg ársreikningur 2021


Fréttatilkynning með ársreikningi Sveitarfélagsins Árborgar 2021

Ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2021 var lagður fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 27. apríl 2022.

Halli á samstæðureikningi Sveitarfélagsins Árborgar árið 2021 er alls 1.790 milljónir króna. Þar af eru fjármagnsgjöld vegna 5,6% verðbólgu 1.206 milljónir króna og má ætla að það sé um 670 m.kr. hærri útgjöld en í venjulegu árferði. Að auki má rekja 418 milljónir til óvæntrar hækkunar lífeyrisskuldbindinga sem urðu þannig 583 m.kr. í stað áætlunar upp á 165 m.kr. Að síðustu má nefna að undirfjármögnun jöfnunarsjóðs á málefnum fatlaðra er um 240 milljónir króna á árinu 2021. Samanlagt eru þessir liðir um 1.330 milljónir króna. Án fyrrgreindra áfalla hefði halli af rekstri samstæðu Svf. Árborgar verið um 460 milljónir króna og er þá ekki allt talið. 

Auk ofangreindra áfalla hefur áfram verði talsverður kostnaður og tekjumissir vegna Covid-19. Má þar nefna endurgreiðslur á skóla-, leikskóla- og frístundargjöldum og vaxandi kostnað vegna veikinda starfsfólks.  Kostnaður við félagsþjónustu hefur aukist verulega á síðustu árum vegna afleiðinga Covid- 19 en einnig vegna annarra þátta s.s. íbúafjölgunar og sérstaks átaks á landsvísu í barnaverndarmálum. Þá hefur umtalsverður aukakostnaður skapast vegna tafa og óhagræðis í tengslum við uppbyggingu skólahúsnæðis og samsvarandi fjölgunar starfsfólks í skólum og leikskólum. Til dæmis var leikskólaplássum fjölgað mun meira á árinu 2021 en gert hafði verið ráð fyrir, enda er mikil eftirspurn eftir fjölgun plássa.  
Starfsemi sveitarfélagsins og liðsheild starfsfólks er orðin afar sterk og þjónustan öflug í kjölfar breytinga á skipuriti og verkferlum þar sem lögð hefur verið áhersla á valdeflingu starfsfólks. Auk þess hefur stafræn þróun skilað vaxandi hagræði með bættri þjónustu og lægri kostnaði á fjölmörgum sviðum. Þetta mun skila sér í hagkvæmari rekstri á næstu árum og er full ástæða til bjartsýni á að reksturinn verði jákvæður þegar ytri aðstæður skána og ofantaldir vaxtaverkir jafna sig.

Viðhengi



Attachments

Sveitarfélagið Árborg_Samantekinn ársreikningur 2021_fyrri umræða