VÍS birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2022 eftir lokun markaða þann 20. október næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, föstudaginn 21. október, klukkan 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 3.
Helgi Bjarnason, forstjóri félagsins, mun kynna uppgjörið og svara spurningum.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://vis.is/3-arsfjordungur-2022/
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast hér: https://www.vis.is/fjarfestaupplysingar/
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu fjarfestatengsl@vis.is