Sveitarfélagið Árborg stækkar skuldabréfaflokkinn ARBO 31 GSB
Sveitarfélagið Árborg hefur stækkað skuldabréfaflokkinn ARBO 31 GSB um 1.500 m. kr. að nafnvirði. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með jöfnum greiðslum afborgana og vaxta, á sex mánaða fresti og föstum 1,35% ársvöxtum. Lokagjalddagi er 16. júní 2031.
Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 2,99%. Átta tilboð að fjárhæð 1.600 m. kr. að nafnvirði bárust í flokkinn ARBO 31 GSB á ávöxtunarkröfunni 2,79% - 3,03%. Eftir stækkun verður skuldabréfaflokkurinn 5.920 m. kr. að nafnvirði.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudagurinn 15. nóvember 2022.
Sveitarfélagið Árborg er fyrsti útgefandinn til að gefa út sjálfbærni skuldabréf hér á landi til fjármögnunar á verkefnum sem hafa umhverfis og/eða félagslegan ávinning. Skuldabréfin eru gefin út í þeim tilgangi að fjármagna græn og/eða félagsleg verkefni í samræmi við Sjálfbærniumgjörð Árborgar.
Landsbankinn hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á „sustainable bond“ markað Nasdaq á Íslandi.
Nánari upplýsingar veita:
Ingibjörg Garðarsdóttir, fjármálastjóri Árborgar, í síma 480 1900 eða inga@arborg.is
Gunnar S. Tryggvason, Markaðsviðskipti Landsbankans, í síma 410 6709 eða gunnars@landsbankinn.is