Brim: Kynningarfundur fyrir uppgjör þriðja ársfjórðungs fimmtudaginn 17. nóvember.



Brim hf. mun birta uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2022 fimmtudaginn 17. nóvember.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 17. nóvember klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1.

Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjör fjórðungsins og svarar spurningum.

Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@brim.is. Aðsendum spurningum verður svarað í lok fundar.

Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 858-1170 eða fjarfestatengsl@brim.is