Sýn hf.: Niðurstöður um kaup á eigin hlutum með tilboðs fyrirkomulagi


Stjórn Sýnar hf. ákvað að taka tilboðum fyrir 13.559.322 hluti á genginu 59,00 í endurkaupum sem tilkynnt var um föstudaginn 17. febrúar 2023.

Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er miðvikudagurinn 22. febrúar 2023. 

Endurkaupin eru framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021.

Sýn hf. á 17.375.208 hluti, eða sem nemur um 6,47% af útgefnu hlutafé félagsins í lok endurkaupa samkvæmt tilboðs fyrirkomulaginu.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl Sýnar í gegnum net­fangið fjarfestatengsl@syn.is