Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 23. mars 2023 með rafrænum hætti auk þess sem hluthöfum gefst kostur á að mæta til fundarins en fundurinn fer fram í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku.
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.
- Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.
- Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðenda.
- Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin bréfum.
- Önnur mál, löglega upp borin.
Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM
Meðfylgjandi er fundarboð með nánari upplýsingum, dagskrá og tillögur stjórnar og starfskjarastefna.
Viðhengi
- Brim_adalfundur_2023_Dagskra-Tillogur
- Brim_adalfundur_2023_Fundarbod
- Tillaga felagsstjornar ad starfskjarastefnu 2023