Í tilkynningu vegna endurkaupa VÍS í viku 1, dags. 09.01.2023 láðist að tilkynna um kaup á eigin bréfum þann 02.01.2023 en þá voru keyptir 1.150.000 eigin hlutir á genginu 16,85 klukkan 14:30. Heildarfjöldi eigin hluta að þeim viðskiptum loknum voru því 35.550.000 og 40.150.000 í lok viku 1.
Vegna þessa voru eigin hlutir félagsins vantaldir í tilkynningum vegna framkvæmdar endurkaupaætlunar fram til loka endurkaupa þann 02.02.2023 sem nemur 1.150.000.
Heildarfjöldi eigin hluta í eigu félagsins er því 54.450.000 að loknum endurkaupum en ekki 53.300.000, líkt og áður hafði komið fram í tilkynningu í Kauphöll þann 02.02.2023.