Í viku 16 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 210.000 eigin hluti að kaupverði 7.539.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
21.4.2023 | 09:30:02 | 210.000 | 35,90 | 7.539.000 |
Samtals | 210.000 | 7.539.000 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 09.02.2023
Sjóvá átti 42.105.381 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 42.315.381 eigin hluti eða sem nemur 3,48% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 5.187.082 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,43% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 180.148.796 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.183.908 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,64% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 11. september 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is