Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 18. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.146.248 eigin hluti að kaupverði 94.538.584 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
2/5/23 | 11:55 | 100.000 | 84,00 | 8.400.000 | 6.450.000 |
2/5/23 | 12:00 | 200.000 | 83,25 | 16.650.000 | 6.650.000 |
2/5/23 | 15:12 | 2.547 | 83,00 | 211.401 | 6.652.547 |
2/5/23 | 15:12 | 93.701 | 83,00 | 7.777.183 | 6.746.248 |
3/5/23 | 14:00 | 200.000 | 83,25 | 16.650.000 | 6.946.248 |
3/5/23 | 14:27 | 100.000 | 83,25 | 8.325.000 | 7.046.248 |
4/5/23 | 09:47 | 100.000 | 81,00 | 8.100.000 | 7.146.248 |
4/5/23 | 14:03 | 200.000 | 81,00 | 16.200.000 | 7.346.248 |
5/5/23 | 13:22 | 150.000 | 81,50 | 12.225.000 | 7.496.248 |
Samtals | 1.146.248 | 94.538.584 | 7.496.248 |
Reitir hafa nú keypt samtals 1.496.248 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 24,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 123.988.584 kr. sem samsvarar 22,5% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 7.496.248 eigin hluti, eða um 1,01% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.