Í 35 viku 2023 keypti SKEL fjárfestingafélag hf. alls 1.242.000 eigin hluti fyrir 16.781.450 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
28.8.2023 | 09:54:47 | 127.000 | 13,45 | 1.708.150 |
29.8.2023 | 10:35:33 | 294.000 | 13,3 | 3.910.200 |
31.8.2023 | 09:41:33 | 398.000 | 13,7 | 5.452.600 |
1.9.2023 | 11:03:03 | 250.000 | 13,5 | 3.375.000 |
1.9.2023 | 12:46:10 | 173.000 | 13,5 | 2.335.500 |
Samtals | 1.242.000 | 16.781.450 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti SKEL 6.193.275 eigin hluti. SKEL hefur nú keypt samtals 7.435.275 eigin hluti fyrir 100.665.406 kr. sem samsvarar 0,384% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup SKEL á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 12. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 18.518.518 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,956% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 250 milljónum króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf., magnus@skel.is