Í viku 35 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 450.000 eigin hluti að kaupverði 15.435.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
31.8.2023 | 09:50:08 | 450.000 | 34,30 | 15.435.000 |
Samtals | 450.000 | 15.435.000 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 29.08.2023.
Sjóvá átti 14.450.264 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 14.900.264 eigin hluti eða sem nemur 1,26% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 450.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,04% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 15.435.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.352.941 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is