Í 45. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 74.217.000 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð |
6.11.2023 | 10:11 | 33.000 | 450,00 | 14.850.000 |
7.11.2023 | 09:44 | 33.000 | 449,00 | 14.817.000 |
8.11.2023 | 10:15 | 33.000 | 450,00 | 14.850.000 |
9.11.2023 | 14:17 | 33.000 | 450,50 | 14.866.500 |
10.11.2023 | 10:07 | 33.000 | 449,50 | 14.833.500 |
Samtals | 165.000 | 74.217.000 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.
Eimskip átti 2.319.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 2.484.320 hluti sem nemur 1,48% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip hefur nú keypt samtals 759.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 35,30% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 355.014.000 sem nemur 35,50% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com