Í 46. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 73.821.000 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð |
13.11.2023 | 09:44 | 33.000 | 447,00 | 14.751.000 |
14.11.2023 | 10:49 | 33.000 | 445,00 | 14.685.000 |
15.11.2023 | 09:56 | 33.000 | 447,00 | 14.751.000 |
16.11.2023 | 10:50 | 33.000 | 448,50 | 14.800.500 |
17.11.2023 | 10:48 | 33.000 | 449,50 | 14.833.500 |
Samtals | 165.000 | 73.821.000 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.
Eimskip átti 2.484.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 2.649.320 hluti sem nemur 1,58% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip hefur nú keypt samtals 924.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 42,98 % af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 428.835.000 sem nemur 42,88 % hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com