Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 1. viku 2024 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 132.000 eigin hluti fyrir ISK 63.871.500 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð |
2.1.2024 | 10:46 | 33.000 | 484,00 | 15.972.000 |
3.1.2024 | 10:12 | 33.000 | 480,00 | 15.840.000 |
4.1.2024 | 10:10 | 33.000 | 482,00 | 15.906.000 |
5.1.2024 | 10:01 | 33.000 | 489,50 | 16.153.500 |
Samtals | 132.000 | 63.871.500 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.
Eimskip átti 3.540.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.672.320 hluti sem nemur 2,19% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip hefur nú keypt samtals 1.947.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 90,56% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 899.926.500 sem nemur 89,99% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna. Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com